Tölvuleikjaheimurinn hefur ávallt heillað mig og þykir mér jafnspennandi að dvelja í honum sem og raunheimi. Tölvuleikir bjóða upp á umhverfi án allra þeirra takmarkana sem einkenna raunveruleikann. Eins og er búum við í tveimur veruleikum, annars vegar innan veggja tölvunnar og hinsvegar utan hennar í manngerðu umhverfi.
Umhverfi tölvuleikjanna er byggt upp á grunnformum sem eru marghyrningar. Minnsta og einfaldasta formið er þríhyrningur sem er mótsögn við þau grunnform sem við erum vön í okkar umhverfi, þar ráða ríkjum ferhyrningar, hringir eða lífræn form.
Uppbrot er óður til þessara tveggja veruleika. Grunnformið úr heimi sýndarveruleikans, þríhyrningurinn, er settur inn í heim raunveruleikans í þrívíðri mynd til að brjóta upp þetta ferhyrningslaga umhverfi sem við búum við og til að setja þríhyrninginn á sama stall og hin grunnformin.
Okkar umhverfi er að mörgu leiti ferhyrningslaga og sést það vel bæði á byggingum sem og á húsgögnum og öðrum hlutum í kringum okkur. Með því að setja Uppbrot inn í þetta ferhyrnda umhverfi er ég að brjóta regluna sem virðist ráða ríkjum. Formið stingur í stúf við rýmið og skapar þannig ákveðna ögrun gegn því sem við erum vön.
Uppbrot er hugsað sem formskoðun með miklum möguleikum á framhaldi, enda fjölhæft form sem með notagildi gæti fegrað hvaða rými sem er. Þess utan eru hnýtingarnar og þræðingarnar með öllu handunnar og eftir þó nokkra rannsókn hef ég komist að einfaldri og heillandi leið við að hnýta formið saman.
Uppbrot er ákveðin myndhverfing af mér. Ég er tengingin á milli þessara tveggja veruleika og með því að hnýta Uppbrot hef ég staðsett sjálfa mig á milli tölvunnar og hið manngerða umhverfis.
Útskriftarverkefni úr Listaháskóla Íslands vorið 2013.
//
The world of video games has always sparked my interest and for me, dwelling in that world is equally as exciting as in the real world. Video games invite you to experience an environment devoid of the limits of our reality. Right now we inhabit two realities, the virtual reality of the computer and the reality outside of it.
The video game environment is at its core made out of basic forms called polygons. The smallest and simplest form is the triangle which is a contradiction to the basic forms we are used to in our environment, the squares, circles and organic forms.
Uppbrot is an ode to those two realities. The basic form of the virtual reality, the triangle, is placed in our real world in a three dimensional shape to break up the square environment we are so used to and to place the triangle equal to the other basic forms.
Our environment is mostly made up of squares and that is clearly visible in the buildings, furniture and other objects around us. By situating Uppbrot in this square environment I am breaking the rules that seem to dominate our visual world. The form contradicts the space it inhabits and thus provokes what we are so accustomed to.
Uppbrot is a formstudy that has great potential in the future since it is a versatile form, that with function could embelish any space it would inhabit. The tying and threading are also completely handmade and after some research I have discovered a simple and charming way of tying the form together.
Uppbrot is a metaphor for myself. I am the connection between these two realities and by tying Uppbrot together I have situated myself between the computer and the manmade environment.
Uppbrot was my graduation project from the Iceland Academy of the Arts in the spring of 2013.